Massatala

Úr testwiki
Útgáfa frá 29. apríl 2021 kl. 18:06 eftir 31.209.208.126 (spjall) (-Yo)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Massatala (A) er samanlagður fjöldi róteinda og nifteinda í frumeindakjarna. Massatala er einstök fyrir hverja samsætu frumefnis og er skrifuð á efti nafni frumefnisins eða sem hávísir vinstra meginn við efnatákn þess. Til dæmis, kolefni-12 (12C) hefur 6 róteindir og 6 nifteindir í kjarnanum. Fullt samsætutákn myndi einnig hafa sætistöluna (Z) sem lágvísi beint undir massatölunni: 612C. Athygli má samt vekja á að þetta er óþarft, því að það er beint samband á milli sætistölu og efnatákns, þannig að þetta er sjaldan notað, nema þegar þarf að sýna fjölda róteinda í kjarna, til dæmis í kjarnahvörfum.