Skúffuregla Dirichlets

Úr testwiki
Útgáfa frá 1. febrúar 2015 kl. 15:31 eftir imported>SvartMan (lagfærði villu í sönnuninni)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Skúffuregla Dirichlets er regla sem segir að; ef k hlutir eru settir í N skúffur, þar sem k > N (hlutirnir eru fleiri en skúffurnar), þarf að minnsta kosti ein skúffan að innihalda fleiri en einn hlut. Viðfang reglunnar er mikilvægt í talnafræði.

Höfundur þessarrar reglu, G. Lejeune Dirichlet, notaði samlíkingu við dúfur (k) og dúfnaholur (N) og því er reglan kölluð „the pigeonhole principle“ á ensku (einnig þekkt sem „Dirichlet's Box Principle“). Á íslensku hefur myndast sú hefð að kalla þetta skúffureglu.

Almenna skúffureglan er þannig: Ef að k hlutir eru settir í N skúffur, þá er að lágmarki til ein skúffa sem inniheldur kN hluti.

Óbein sönnun

Gerum ráð fyrir því að engin skúffa innihaldi fleiri en kN1 hluti. Þá er samanlagður fjöldi hluta í skúffum lægri en k.

N(kN1)<N((kN+1)1)=N(kN+11)=k,

þar sem að ójafnan kN<(kN+1) er notuð. Þetta er mótsögn: k hlutir voru upphaflega settir í skúffurnar og eru þar enn. Því hlýtur að vera til skúffa sem inniheldur fleiri en kN1 hluti. Sú skúffa inniheldur að lágmarki kN hluti.

Dæmi

Í 100 manna hópi eru að lágmarki 10012=9 manns sem eiga afmæli í sama mánuði.

Tenglar

Snið:Stubbur