Slembibreyta

Úr testwiki
Útgáfa frá 4. október 2013 kl. 00:54 eftir 130.208.131.203 (spjall)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Slembibreytur í líkinda- og tölfræði eru breytur sem taka á sig handahófskennd gildi. Við höfum í raun ekki áhuga á gildunum sem breyturnar taka heldur dreifingunni sem þær fylgja. Dreifingin segir til um líkurnar á því að slembibreyta taki ákveðið gildi.

Öfugt við aðrar stærðfræðilegar breytur taka slembibreytur ekki eitt fast gildi; öllu heldur er til mengi af mögulegum gildum sem þær geta tekið og taka þá hvert gildi með ákveðnum líkum.

Skilgreining

Slembibreyta er fall X sem varpar útkomurúmi Ω í mengi rauntalna.

Dæmi

Skoðum eftirfarandi tilraun: Vel gerðum peningi er kastað n sinnum. Látum 1 tákna fiska og 0 skjaldamerki.

Þá er útkomurúmið: Ω = {0,1}×...×{0,1}. Sérhvert ω í Ω er röð af 1 og 0. Athugum fjölda fiska eftir n köst. Nú er hentugt að skilgreina slembibreytu:

X(ω)=i=1nωi,

fyrir ω = (ω1,...,ωn), ωi í {0,1}. Hér lítum við á X sem fall sem varpar ω í Ω í mengi rauntalna.


Beta dreifing
Kí-kvaðrat dreifing
Veldisdreifing
Poisson dreifing
Gamma dreifing
Cauchy dreifing
Laplace dreifing
Lévy dreifing
Normaldreifing

Helstu gerðir slembibreyta

Strjálar slembibreytur

Samfelldar slembibreytur

Á lokuðum bilum

Á opnum hálflínum

Á allri rauntalnalínunni

Aðrar slembibreytur

Tengt efni