Undirstöðusetning reikningslistarinnar

Úr testwiki
Útgáfa frá 20. desember 2021 kl. 03:24 eftir imported>InternetArchiveBot (Bjarga 1 heimildum og merki 0 sem dauðar.) #IABot (v2.0.8.5)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Undirstöðusetning reikningslistarinnar,[1][2][3] grunnsetning reikningslistarinnar[2][3] eða frumþáttunarsetning[2][3] er setning í stærðfræði sem er mikið hagnýtt í talnafræði. Setningin segir að rita megi allar náttúrulegar tölur sem eru stærri en einn sem margfeldi frumtalna á nákvæmlega einn hátt.[1] Að rita tölu sem margfeldi frumtalna nefnist frumþáttun.

Sönnun

Sönnun að hætti Ernst Zermelo

Snið:Setning

Hverja náttúrlega tölu n stærri en 1 má rita sem margfeldi frumtalna á einn og aðeins einn hátt (óháð röð). Snið:Sönnun

Það er gefið að p1,p2,,ps1,ps séu frumtölur svo margfeldi þeirra sé n=p1p2ps1ps þar sem s má vera 1 svo n=2.

(a) Sýnum fyrst að rita megi n sem margfeldi frumtalna: Látum F(n) vera fullyrðingunan er margfeldi frumtalna“. Þetta er augljóst fyrir F(2) því 2 er frumtala. Gerum ráð fyrir að F(k) sé rétt fyrir allar tölur k = 2, ..., n og sýnum að F(n+1) sé sönn. Ef n + 1 er frumtala er F(n+1) sönn fullyrðing, annars er n+1 margfeldi minni náttúrlegra talna sem við getum kallað u og v. Þá er 2 ≤ u ≤n og 2 ≤ v ≤n. Samkvæmt þrepunarforsendu eru bæði u og v margfeldi frumtalna. Ritum þá u = p1· ··· ·pr og v = pr+1· ··· ·ps. Þá er n + 1 = k·j = pr· ··· ·ps og því er n + 1 margfeldi frumtalna. Því er F(n+1) sönn fullyrðing og eins og átti að sýna er hægt að rita n sem margfeldi frumtalna.

(b) Sýnum næst að ekki er hægt að rita n sem margfeldi frumtalna nema á einn máta óháð röð: Þetta er augljóst fyrir n = 2 þar sem 2 er stök frumtala. Gerum þá ráð fyrir að n sé stærri en 2 og að fullyrðingin sé rétt fyrir allar tölur minni en n. Gerum svo ráð fyrir að við höfum ritað n sem margfeldi frumtalna á tvo vegu:

n=p1pr=q1qs

Við getum þá raðað þáttunum þannig að p1≤ ··· ≤ pr og q1≤ ··· ≤ qs. Við fullyrðum að p1= q1 en gerum ráð fyrir til mótsagnar að svo sé ekki og að p1 ≤ q1. Þá er:

m:=p1q2qs<n

p1 gengur bæði upp í n og m og því einnig upp í n - m:

(I) nm=p1u1uh

Þar sem u1· ··· ·uh er margfeldi frumtalna. Einnig er n - m = (q1 - p1) · q1· ··· ·q1 og rita má (q1 - p1) = v1· ··· ·vt. En þar með er:

(II) nm=v1vtq1qs

Talan p1 gengur ekki upp í (q1 - p1) þar sem q1 er frumtala. Þá er (I) og (II) tveir mismunandi rithættir á n - m sem er í mótsögn við þrepunarforsendu. Þar með er p1 = q1 og einnig r=s fyrir p1· ··· ·pr = q2· ··· ·qsog pk = qk fyrir k = 2, ..., r. Snið:QED

Tengt efni

Heimildir

  1. 1,0 1,1 Undirstöðusetning reikningslistarinnarSnið:Óvirkur hlekkur á Hugtakasafni — Verkefni á vegum ÍSF
  2. 2,0 2,1 2,2 fundamental theorem of arithmetic Snið:Webarchive á Stærðfræðiorðasafninu
  3. 3,0 3,1 3,2 fundamental theorem of arithmeticSnið:Óvirkur hlekkur á Orðasafni íslenska stærðfræðifélagsins

Snið:Stubbur

de:Primfaktorzerlegung#Fundamentalsatz der Arithmetik