Hlutfall

Úr testwiki
Útgáfa frá 10. apríl 2015 kl. 01:46 eftir 85.220.26.254 (spjall) (,,1 af hverjum 3 les blöðin" ekki ,,1 af hverjum 3 lesa blöðin")
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hlutfall er samband tveggja talna n og m, gefið með setningunni „n á móti m“ eða „n af hverjum m“ . Hlutfall má einnig setja fram sem almennt brot: n/m eða n:m, sem tugabrot eða hundraðshluta. Algeng hlutföll eru hálfur, þriðjungur og fjórðungur. Dæmi: „Helmingurinn féll á prófinu“, „1 af hverjum 3 les blöðin daglega“, eða „25% þjóðarinnar eru ólæs“.

Hlutföll geta einnig verið óræð, t.d. , sem er ummál hrings á móti þvermáli og gullinsnið, sem algengt er í byggingarlist og myndlist. Í ljósmyndun og sjónvarpstækni er oftast notast við hlutföllin 3/2, 4/3 og 1/1, en breiðskjár hefur hlutföllin 16/9.

Tákn

Stærðfræðitáknið ∝ gefur til kynnaað tvö gildi séu í beinu hlutfalli við hvort annað, AB merkir til dæmis að A sé í beinu hlutfalli við B. Ef y=2x þá væri yx.

Unicode-táknið fyrir þetta er U+221D.