Orkuleiðrétt mjólk

Úr testwiki
Útgáfa frá 16. janúar 2021 kl. 00:49 eftir imported>InternetArchiveBot (Bjarga 0 heimildum og merki 1 sem dauðar.) #IABot (v2.0.8)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Orkuleiðrétt mjólk, skammstafað OLM, kallast mælimjólk sem hefur verið leiðrétt fyrir fitu- og próteininnihaldi. Orkuleiðrétt mjólk er því sú mjólk sem hefur ákveðið orkuinnihald, eða 750 kílókaloríur í kílógrammi. Notuð er sérstök reikniaðferð til að umreikna mælimjólk með uppgefin efnainnihöld yfir í OLM.

Reikniaðferðir

Íslenska aðferðin[1]: kgOLM=M×(0,01+0,122×f+0,077×p+0,053×l)

Danska aðferðin (Energikorrigeret mælk, EKM)[2]: kgOML=(0,383×f+0,242×p+0,7832)/3,140

Munurinn á formúlunum lýsir muninum á efnainnihalda íslenskrar og danskrar mjólkur. Íslenska aðferðin, sem fengin er að hluta frá Noregi, tekur tillit til þess hve mikil mjólk fæst úr hverri kú (fastinn M) en sú danska gerir það ekki. Fastinn p merkir próteinhlutfall mjólkur, fastinn f er fituhlutfall og fastinn l táknar mjólkursykurshlutfall (laktósa).

Notkun

Útreikningar á orkuleiðréttri mjólk eru notaðir við ákvarðanir á fóðurþörfum mjólkurkúa.

Neðanmálsgreinar

Ítarefni