Ferningsrót

Úr testwiki
Útgáfa frá 10. október 2024 kl. 22:44 eftir imported>Thvj
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ferningsrót eða kvaðratrót af rótarstofni a er sú jákvæða tala sem margfölduð sjálfri sér gefur rótarstofninn, þar sem a er jákvæð tala tala undir rótarmerki. Tölurnar núll og einn eru ferningsrætur sjáfra sinna. Ferningsrót af s.n. ferningstölu er heiltala.

Ferningsrótin af rótarstofninum 9 er 3, þar sem 32=3×3=9. Hins vegar er (3)2=(3)×(3)=9 þó að (-3) sé ekki ferningsrót af 9. Ferningsrótin af 9 er skrifuð sem 9.

x2 er |x| þar sem ferningsrótin og annað veldið fella hvort annað úr gildi. x4 er hins vegar x2 þar sem x2×x2=x4. Þegar ferningsrót er dregin af veldi, þá deilist í veldisvísinn með tveimur.

Til að finna ferningsrót af almennu broti skal finna ferningsrót af teljara og nefnara sjálfstætt. T.d.

925=925=35

Deiling og margföldun róta

Ferningsrótin af a margfölduð með ferningsrótini af b er hin sama og ferningsrótin af a margfölduð með b; eða:

a×b=ab

Eins er farið að með deilingu; eða: a:b=ab

Reglan gildir eingöngu ef rótarvísir er hinn sami.

Þvertölur

Neikvæðar tölur hafa ekki ferningsrót í mengi rauntalna. Það er vegna þess að í hvert sinn sem venjuleg tala er hafin í annað veldi er útkoman jákvæð tala. Til að ráða bug á þessu má búa til nýjan hlut sem gegnir því hlutverki að vera ferningsrót tölunnar -1. Þessi stærðfræðihlutur er jafnan ritaður i og er kölluð þvertalan með lengd 1. Þannig er i*i=1.