Rúmmál

Úr testwiki
Útgáfa frá 29. nóvember 2022 kl. 13:57 eftir imported>Logiston (Rúmmál yfir í lítra)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Rúmmál er hugtak notað yfir umfang hlutar eða svæðis í þrívíðu rúmi. SI-mælieining er rúmmetri, táknaður með m3.

Nokkur skref til að finna rúmmál hlutar:

  1. Finna út lengd, breidd, og hæð hlutar og hafa í sömu lengdareiningu.
  2. Margfalda það saman. Út kemur rúmmál í þessari rúmeiningu.
  3. Einfalda tölurnar ef þarf.

Fyrir hverja lengri lengdareiningu, þá skal færa kommuna um þrjá tölustafi til vinstri. Fyrir hverja styttri lengdareiningu, þá skal færa kommuna um 3 tölur til hægri. T.d. er 1 cm3 = 1000 mm3 en annars er cm eingöngu 10 sinnum stærri en mm.

Rúmmál yfir í lítra

Rúmmálseiningin lítri er algeng lagarmálseining, en hann er skilgreindur þannig:

1 m3 = 1000 lítrar

1 dm3 = 1 lítri

1 cm3 = 0,001 lítri

1 mm3 = 0,000001 lítri

Millilítrar

1 cm3 = 1 millilítri

Rúmmál ýmissa forma

R = Rúmmál

l = lengd

b = breidd

r = radíus

h = hæð

Ferstrendingur

R=lbh

Sívalningur

R=hπr2

Pýramídi

R=lbh3

Keila

R=hπr23

Kúla

R=4πr33

Mælingar og mælitæki

Snið:Wikiorðabók Yfirfallsker er einfalt tæki til að mæla rúmmál hluta eða rúmmetra. Kerið er fyllt af vökva og hlutinn sem mæla á látinn síga ofan í það. Vökvinn sem lekur úr kerinu er mældur og hann gefur þá upp rúmmál hlutarins í millilítrum.