Segulmagn

Úr testwiki
Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 04:43 eftir imported>Addbot (Bot: Flyt 67 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q3294789)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Segulmagn eða seglun er sá eiginleiki sumra efna að mynda segulsvið. Hlutir úr slíku efni kallast seglar.

Stærðfræðileg skilgreinig

Segulmagn M hlutar er vigurstærð og á við fjölda segultvískauta m á rúmmálseiningu:

M = N m/V,

þar sem N táknar fjölda segultvískauta í rúmmálseiningunni V. Síseglar hafa fast segulmagn, en sumir hlutir mynda segulmagn þegar á þá verkar ytra segulsvið.

Tengsl eru milli vigra segulsviðsstyrks B og H og segulmagns þannig að

𝐁=μ0(𝐇+𝐌),

þar sem μ0 er segulsvörunarstuðull lofttæmis.

Vigrarnir M og H eru innbyrðist háðir:

𝐌=χm𝐇,

þar sem χ er einingarlaus stærð, s.n. segulviðtak og lýsir hvernig hlutur bregst við ytra segulsviði. Segulviðtak getur ýmist verið jákvætt (samseglun), eða neikvætt(mótseglun).

Því má einnig rita:

𝐁=μ0(1+χm)𝐇,

eða

𝐁=μ𝐇,

þar sem μ=μ0(1+χm) er segulsvörunarstuðull.

Sjá einnig