Hringhraðlageislun

Úr testwiki
Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 04:43 eftir imported>Addbot (Bot: Flyt 10 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q2282122)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hringhraðlageislun er rafsegulgeislun, sem myndast þegar hlaðnar agnir fara um segulsvið. Lorentzkraftur, sem er hornréttur á hraðavigur agnar og segulsvið, verkar á ögnina og sveigir braut hennar þannig að að hún tekur að hreyfast eftir hringferli í sléttu þvert á segulsviðslínurnar.

Hlaðin eind, með massa m og hleðslu q, sem fer með jöfnum hraða v um segulsvið af styrk B, fer eftir hringferli með brautargeislann

Skýringarmynd af hringhraðli úr einkaleyfi 1934.
rg=mv|q|B

þar sem

v er brautarhraði eindarinnar, hornrétt á segulsviðið.

Tíðni hringhreyfingarinnar fæst með:

ν=qB2πm

Sambandið hér að ofan fæst með því að gera ráð fyrir að hraðinn sé fjarri ljóshraða og að Lorentzkraftur sé jafn miðsókarkrafti hringhreyfingarinnar. Þannig má einangra geislann r út úr jöfnunni.

Ef ögnin er rafeind fæst

νe=2,80×1010B..Hz

og ef um róteind er að ræða gildir

νp=1,50×107B..Hz,

þar sem segulsviðsstyrkurinn er gefinn í einigunni tesla.

Ef hraði eindanna nálgast ljóshraða þarf að reikna með jöfnum afstæðiskenningarinnar og er þá talað um samhraðlageislun.