Eðlismassi

Úr testwiki
Útgáfa frá 27. september 2024 kl. 19:15 eftir imported>Thvj (eðlisþéttleiki)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Eðlismassi, stundum nenfdur (eðlis)þéttleiki, er hlutfall massa og rúmmáls fyrir efni sem er samleitt í því magni sem til athugunar er, táknaður með gríska stafnum hró (ρ). SI-mælieining er kílógramm á rúmmetra (kg/m3).

Skilgreining:

ρ=mV

þar sem m er massinn en V rúmmál.

Eðlismassi efnis er eðliseiginleiki, en er háður ástandi efnisins, s.s. hita og þrýstingi. Þetta á einkum við efni í gasham.