Orkuleiðrétt mjólk
Orkuleiðrétt mjólk, skammstafað OLM, kallast mælimjólk sem hefur verið leiðrétt fyrir fitu- og próteininnihaldi. Orkuleiðrétt mjólk er því sú mjólk sem hefur ákveðið orkuinnihald, eða 750 kílókaloríur í kílógrammi. Notuð er sérstök reikniaðferð til að umreikna mælimjólk með uppgefin efnainnihöld yfir í OLM.
Reikniaðferðir
Íslenska aðferðin[1]:
Danska aðferðin (Energikorrigeret mælk, EKM)[2]:
Munurinn á formúlunum lýsir muninum á efnainnihalda íslenskrar og danskrar mjólkur. Íslenska aðferðin, sem fengin er að hluta frá Noregi, tekur tillit til þess hve mikil mjólk fæst úr hverri kú (fastinn M) en sú danska gerir það ekki. Fastinn p merkir próteinhlutfall mjólkur, fastinn f er fituhlutfall og fastinn l táknar mjólkursykurshlutfall (laktósa).
Notkun
Útreikningar á orkuleiðréttri mjólk eru notaðir við ákvarðanir á fóðurþörfum mjólkurkúa.
Neðanmálsgreinar
- ↑ Snið:Bókaheimild (bls. 71)
- ↑ Snið:Bókaheimild (bls. 34)
Ítarefni
- Fóðurþarfir nautgripaSnið:Óvirkur hlekkur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands