Hornhraði

Úr testwiki
Útgáfa frá 9. janúar 2014 kl. 01:20 eftir imported>EmausBot (Bot: Flyt 1 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:Q161635)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hornhraði er heiti á hraða hringhreyfingar, táknuðum með ω. SI-mælieining: radían á sekúndu (rad/s) . Stefna vigurs hornhraðans er þvert á sléttu hringhreyfingarinnar og ákvarðast skv. hægrihandarreglu. Hornhraðinn 2π rad/s samsvarar horntíðninni einum hring á sekúndu.

Stærðfræðileg skilgreining á vigri hornhraða:

ω=𝐫×𝐯|𝐫|2,

þar sem r er staðsetningarvigur, v hraðavigur og X táknar krossmargfeldi.

Stærð hornhraðans verður því:

ω=|𝐯|sin(θ)|𝐫|,

þar sem θ er hornið milli r og v. Ef r og v eru hornréttir með fasta stærð r og v fæst ω = v/r.

Hringhreyfing, með fasta stærð hornhraðans, kallast jöfn hringhreyfing.