Slétta (rúmfræði)

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit

Slétta eða plan er eitt af grunnhugtökum rúmfræðinnar og á við flöt í þrívíðu rúmi, sem hefur enga dýpt. Hin grunnhugtökin eru punktur og lína. Einfaldasta dæmið er hlutrúmið 2, sem er tvívítt. Sléttur í hærri víddum en 3 eru kölluð háplön.

Slétta er spönnuð af tveimur línulega óháðum vigrum, t.d. a og b. Slétta, sem fer um punktinn c, er mengi allra vigra x=(x1,x2,x3) sem rita má þannig:

x=sa+tb+c,

þar sem að s og t eru stikar.

Skipta má sléttu í tvívíðu rúmi með línu í tvær hálfsléttur.

Snið:Línuleg algebra Snið:Stubbur