Ósamþátta

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit
Tölurnar 4 og 9 eru ósamþátta og því sker lína á milli þeirra enga punkta í punktagrind.

Tvær heiltölur a og b þykja ósamþátta[1] eða ósamþættar[1] ef stærsti samdeilir þeirra er einn (ssd(a,b)=1) en það er stundum táknað með rithættinum ab. Dæmi um tölur sem eru ósamþátta eru 9 (þáttað 33) og 20 (þáttað 225) þar sem þær hafa engan sameiginlegan þátt en 8 (þáttað 23) og 20 (225) eru hins vegar samþátta þar sem þær deila þættinum 22. Talan einn er ósamþátta öllum heiltölum og því er ssd(a,1) alltaf jafnt og 1 þegar a er heiltala.

Almennt brot af gerðinni pq þar sem p og q eru ósamþátta heiltölur telst vera fullstytt brot.[2] ϕ-fall Eulers ϕ(n) skilar fjölda heiltalna sem eru ósamþátta n.

Nota má keðjudeilingu (reiknirit Evklíðs) til að ákvarða hvort tvær tölur séu ósamþátta.

Tilvitnanir