Aðfella

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit
f(x)=1x teiknað á Kartesíusarhnitakerfinu. X- og y-ásarnir eru aðfellurnar.

Snið:Tilvísun

Aðfella[1][2][3] (sjaldnar ósnertill)[2][3] er bein lína, sem er þannig að fjarlægð ferilsins og aðfellunnar verður sífellt minni því lengra sem farið er eftir ferlinum frá einhverjum punkti á honum og má þá segja að ferillinn „halli sér“ stöðugt betur að aðfellunni þegar farið er fjær punktinum.

Til eru þrjár tegundir aðfellna fyrir ferla með föll y = f(x): lóðfella, lóðrétt aðfella þar sem fallið vaxi óendanlega mikið við lóðfelluna; láfella, lárétt aðfella sem ferillinn nálgast þegar x nálgast +∞ eða −∞ og skáfella, þar sem aðfellan er hvorki samhliða x- né y-ásnum.

Ferill sem sker aðfellu sína, jafnvel óendanlega oft.

Tengt efni

Tilvísanir