Hugtök í nótnaskrift
Fara í flakk
Fara í leit
Nótnaskrift á við þau tákn sem eru notuð í nótnaheftum.
Línur
| Nótnastrengir Allar nótur eru ritaðar með tilliti til nótnastrengjanna. Með G-lyklinum (diskantlyklinum) er neðsti stafurinn E4 eða E yfir mið-C. | |
| Aukalínur Línur sem er bætt við fyrir ofan eða neðan nótnastreng. | |
| Taktstrik Notað til aðgreiningar á takti. | |
| Tvöfalt taktstrik Notað til aðgreiningar á tveimur hlutum eða hendingum. Feitletruð tvöföld taktstrik gefa til kynna að lagi eða hreyfingu sé lokið. |
Lyklar
Lyklar afmarka tónhæðina og eru meðal fyrstu táknanna til vinstri á nótnastrengnum.
| G-lykill[1] (diskantlykill) Algengasti lykill í nótnaskrift. Miðja spíralsins afmarkar nótuna G yfir mið-C. | ||
| C-lykill (altlykill eða tenórlykill) Tákn sem sýnir stöðu einstrikaðs C á nótnastreng sem er þriðja línan á myndinni hér til vinstri. | ||
| F-lykill (bassalykill)[1] Línan sem liggur á milli punktanna tveggja í F-lyklinum er nótan F fyrir neðan mið-C. | ||
| Heilnóta — heilnótuþögn[1] | ||
| Hálfnóta — hálfnótuþögn[1] | ||
| Fjórðapartsnóta — fjórðapartsþögn[1] | ||
| Áttundapartsnóta — áttundapartsþögn[1] | ||
| Sextándapartsnóta — sextándapartsþögn | ||
| Punkteruð nóta[1] Einn punktur á eftir nótu eykur lengdargildi hennar um helming.[1] Þegar tveir punktar eru á eftir nótu þá jafngildir seinni punkturinn helmingnum af þeim fyrsta.[1] -punktar lengja nótu um af gildi sínu. Einnig er hægt að lengja hvíldir á sama hátt.[1] | ||
Formerki í tónlist
Algeng formerki
Formerki breyta tónhæð þeirrar nótu sem það fylgir. modify the pitch of the notes that follow them on the same staff position within a measure, unless cancelled by an additional accidental.
| Lækkunarmerki'[1] (bé) Lækkar tónhæð nótu um einn hálftón. | |
| Hækkunarmerki[1] (kross) Hækkar tónhæð nótu um einn hálftón. | |
| Afturköllunarmerki[1] Ógildir fyrri hækkun eða lækkun á tónhæð. |