Línustrik

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit
Rúmfræðileg útskýring á línustriki.

Strik eða línustrik er í rúmfræði hluti línu sem er táknað með tveimur punktum, og inniheldur alla punkta línunnar á milli endapunktanna.

Dæmi um línustrik eru t.d. hliðar þríhyrninga og ferhyrninga.

Skilgreining

Ef V er vigurrúm yfir eða , og L er hlutmengi af V, þá er L strik ef hægt er að setja það upp sem:

L={𝐮+t𝐯t[0,1]}

fyrir einhverja vigra 𝐮,𝐯V þar sem 𝐯𝟎, en í því tilfelli eru vigrarnir 𝐮 og 𝐮+𝐯 kallaðir endapunktar hjá L.

Stundum verður að gera greinarmun á milli „opins“ og „lokaðs“ striks. Þá skilgreinir maður lokað strik eins og gert er að ofan og opið línustrik sem hlutmengi L sem hægt er að setja upp sem:

L={𝐮+t𝐯t(0,1)}

fyrir einhverja vigra 𝐮,𝐯V með𝐯𝟎.

Eiginleikar

Tengt efni

Tenglar

Snið:Commons