Mengjaaðgerð

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit

Mengjaaðgerðir er í stærðfræðiaðgerð að mynda eitt mengi úr gefnum mengjum á ákveðinn hátt.

Sammengi

Venn-mynd af A sam B:
AB

Sammengi AB er táknað AB og lesið „A sam B“. Öll stök sem koma fyrir í A og B eru í sammengi þess.

Dæmi: {1,2,3}{2,3,4}={1,2,3,4}

Sniðmengi

Venn-mynd af A snið B:
AB

Sniðmengi AB er táknað AB og lesið „A snið B“. Öll stök sem eru sameiginleg með A og B eru í sniðmengi þess.

Dæmi: {1,2,3}{2,3,4}={2,3}

Mismengi

Venn-mynd af A mis B:
AB=ABc

Mismengi A og B er táknað AB og lesið „A mis B“. Öll stök sem koma fyrir í A en eru ekki hluti af B koma fyrir í þessu mismengi. Hins vegar er mismengið BA mengi allra staka sem fyrir koma í B en eru ekki stök í A.

Dæmi: {1,2,3}{2,3,4}={1}

Fyllimengi

Venn-mynd af fyllimengi A:
Ac=cA

Fyllimengi er fundið út frá gefnu mengi, A, og tilteknu grunnmengi, G, sem hið gefna mengi er hlutmengi í. Fyllimenginu tilheyra öll stök grunnmengisins, sem ekki eru stök í A. Þannig er fyllimengi A það sama og GA. Fyllimengi mengisins A er táknað með yfirstrikuðu A;

Dæmi:
Ef A={1,2,3} og G={4,3,2,1,0,1,2,3,4,5}
A={4,3,2,1,0,4,5}.