Samantekt

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit

Samantekt er í stærðfræði aðferð til þess að reikna svarið við spurningunni „á hve marga vegu get ég valið r stök úr n staka mengi?“. Samantekt r hluta kallast r-samantekt, og er óraðað val r hluta úr safninu.

Reiknireglan er leidd út frá margföldunarreglunni og segir að þar sem velja má n hluti úr n staka mengi með óröðuðum hætti á n! vegu, þá gildi að hægt sé að velja r hluti úr n staka mengi á

n!r!(nr)!

mismunandi vegu, en það er skrifað á ýmsa vegu: C(n,r)=(nr)=nCr=n!r!(nr)!. Rithátturinn (nr) er algengastur, en hann er notaður í tvíliðureglunni til þess að tákna stuðul við hvern lið, og er þetta því einnig kallað tvíliðustuðull.

Samantektir koma einnig fyrir í Pascal-þríhyrningnum, ásamt ýmsum fléttufræðilegum reglum.

Sönnun

Samantektir eru náskyldar umröðunum, og ein einfaldasta aðferðin til þess að sanna samantektir er að segja:

Hægt er að finna r-umraðannir með því að reikna r-samantekt og margfalda það með fjölda hugsanlegra slíkra samantekta. Þá gildir:

P(n,r)=C(n,r)P(r,r)

sem gefur okkur:

C(n,r)=P(n,r)P(r,r)=n!(nr)!r!(rr)!=n!r!(nr)!

Snið:Stubbur