Skilyrtar líkur

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit

Skilyrtar líkur eru, í líkindafræði, lýsing á því hvernig einn atburður er háður öðrum.

Skilgreining

Fyrir P(B)>0 gildir:

P(A|B)=P(AB)P(B).

P(A|B) er lesið „líkurnar á að A gerist, gefið að B gerist“, eða einfaldlega „líkurnar á A gefið B“.

Dæmi

Sé tveimur teningum kastað, með það markmið að reyna að fá samanlagða tölu hærri en 10, þá eru líkurnar á því að summan sé hærri en tíu háð niðurstöðunni úr fyrsta kastinu.

Köllum atburðinn E = „summan er hærri en 10.“, og atburðinn F = „fyrsta teningskastið var 5“. Gerum ráð fyrir að um sanngjarna teninga sé að ráða, og því jafnar líkur á öllum gildum frá 1 upp í 6.

Fyrsta teningnum er kastað, og líkurnar eru 1/6 að atburðurinn F eigi sér stað. Gerum ráð fyrir því að hann eigi sér stað. Hverjar eru líkurnar á að, þegar að seinni teningnum er kastað, að summa þeirra verði 10?

P(E|F)=P(EF)P(F).

Nú eru möguleikarnir á EF þeir að teningaköstin verði {(5,5),(5,6)}. Þá eru líkurnar á því P(EF)=2/36=1/18. Þá er

P(E|F)=P(EF)P(F)=1/181/6=0.333...=33.3%.

Snið:Stubbur