Veldi (stærðfræði)

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit

Veldi[1] er stærðfræðiaðgerð an þar sem veldisstofn[2][3][4] a er margfaldaður með sjálfum sér jafn oft og veldisvísirinn[5] n tilgreinir:

an=a××an

þar sem veldisstofninum a er margfaldað jafn oft við sjálfan sig og veldisvísirinn n gerir grein fyrir, en sé veldisvísirinn 0 er útkoman 1. Sem dæmi má nefna að 43 (fjórir í þriðja veldi) jafngildir 444=64. Í þessu dæmi er veldisstofninn 4 og 3 veldisvísirinn.

Eingöngu er hægt að sameina veldi ef að stofninn er sá sami. Veldi eru sameinuð með því að leggja saman veldisvísana. sasb=sa+b, til dæmis 4347=43+7=410

Sömuleiðis gildir það með deilingu: sasb=sab, til dæmis 5453=543=51=5

Einnig gildir: (sa)b=sab, til dæmis (94)3=943=912

Athugið að eftirfarandi gildir:  2222=224=216=65536

Ástæðan er sú að veldisvísarnir eru reiknaðir fyrst frá hægri til vinstri í veldum. Þetta má rekja til tetra-reiknings. Aðgreina þarf með svigum ef leysa á úr veldum frá vinstri til hægri.


Neikvæð veldi eru notuð til að tákna tölur eða tákn sem hafa gildi milli 0 og 1. Hægt er að finna gildi þeirra með því að sleppa formerkjunum í veldisvísinum og deila í 1. 103=1103=0,001

Einnig skal athugað að s0=1 fyrir öll hugsanleg gildi á s

Almenn brot sem veldisvísar

Hægt er að tákna kvaðratrót í veldum, en í þeim tilvikum, þá eru notuð almenn brot. Nefnarinn er þá kvaðratrótin sem stofninn er í og teljarinn er veldisvísirinn. Það er síðan hafið í veldi skilgreint með nefnara.

a23=(a3)2

og þar sem a=8:

a23|a=8=823=(83)2=(2)2=4

Þegar stofn er í 1/2 veldi, þá er þetta jafnt kvaðratrótinni af stofninum. T.d. a12=(a2)1=a

Tilvísanir


Tengt efni