Þéttifall

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit

Þéttifall er samfellt fall sem er aldrei neikvætt og er samtals 1 þegar það er heildað yfir alla talnalínuna. Þéttifall lýsir líkindadreifingu samfelldrar slembistærðar. Heildi þéttifalls yfir bil á talnalínunni lýsir líkindum þess að slembistærðin lendi á því bili. Frægasta þéttifallið er normaldreifingin.

Normaldreifingin. Hvert einasta bil hefur vissar líkur.
  • f(x)0 (fyrir hvert einasta x á talnalínunni)
  • f(x)dx=1
  • f er samfellt allstaðar á talnalínunni

Heildun þéttifalla má beita til að reikna líkindi á alls kyns atburðum. Til dæmis eru líkurnar á því að margfeldi gefnu slembistærðanna P og Q, með þéttiföll p og q, sé akkúrat gefna talan a gefin með eftirfarandi heildi yfir talnalínuna:

+p(x)q(ax)dx

Ef P og Q eru handahófskenndar hliðarlengdir rétthyrnings mældar í metrum, með einhver skilgreind þéttiföll p og q, þá eru líkurnar á því að flatarmál rétthyrningsins sé 5m2:

+p(x)q(5x)dx

Snið:Stubbur