Brook Taylor

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit
Sir Brook Taylor

Brook Taylor (18. ágúst 168529. desember 1731) var enskur stærðfræðingur, sem átti þátt í þróun örsmæðareiknings. Hann gaf út bók árið 1715, sem inniheldur það sem í dag nefnist Taylorröð, en í raun höfðu aðrir uppgötvað þetta á undan honum. Taylorröð er stærðfræðileg umskrift, sem gerir kleift að nálga sérhvert n sinnum diffranlegt fall með n-ta stigs margliðu með minnkandi skekkju eftir því sem liðirnir verða fleiri. Taylorraðir eru mjög mikilvægar í stærðfræðigreiningu og margar stærðfræðiformúlur byggjast á þeim. Til dæmis ex=1+x+x22!+x33!+x44!+...xnn!+... , sem betra er að skrá svona: ex=n=0xnn!

Heimildir

Snið:Fd