Veldismengi

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit

Veldismengi er mengi, sem venslað er öðru mengi A þannig að stök þess eru öll hlutmengi mengisins A, táknað 𝒫(A). Setjum að mengi Aendanlegt með n stök, en þá er fjöldi staka í veldismenginu |𝒫(A)| = 2n.

Dæmi: mengi A hefur 3 stök, þ.e. A = {a,b,c} og veldismengið hefur því 8 stök: { } (tómamengið), {a}, {b}, {c}, {a,b}, {a,c}, {b,c} og {a,b,c} (mengið sjálft). Veldismengið má þá rita þannig:

𝒫(A)={{},{a},{b},{c},{a,b},{a,c},{b,c},{a,b,c}}.

Fjöldatala veldismengis tiltekins mengis, er alltaf stærri en fjöldatala þess mengis. Ekki er til mengi allra fjöldatalna, því veldismengi slíks mengis hefði þá hærri fjöldatölu en mengið sjálft.