Fjöldatala

Úr testwiki
Fara í flakk Fara í leit

Fjöldatala, fjöldi eða stétt er hugtak í mengjafræði, sem er mælikvarði á fjölda staka í tilteknu mengi M, oft táknuð með | M | eða card ( M ).

Stærðræðilegri framsetning á fjöldatölu teljanlegs mengis er að talan n er fjöldatala mengisins A þá og því aðeins að til sé gagntækt fall f á hlutmengi náttúrulegra talna, þ.e. f:A{1,...,n}. Dæmi: talan 3 fjöldatala mengisins A={2,5,7}. Ef slík vörpun finnst ekki þá er mengið A sagt óteljanlegt.

Fjöldatala mengja með óendanlegan fjölda staka táknuð með hebreska tákninu (framburður alef). Fjöldatala mengi náttúrulegra talnan er táknuð með 0, sem jafnframt er fjöldatala allra óendanlegra, teljanlegra mengja. Til eru óendanlega mörg talnamengi, sem hafa stærri fjöldatölu en 0, en þau eru óteljanleg, t.d. mengi rauntalna, sem hefur fjöldataöluna 1. (Fjöldatala mengis rauntalnanna er stundum nefnd fjöldatala samfellunnar, táknuð með 𝔠.)

Augsljóslega gildir að 0 < 1, en almennt gildir um fjöldatölur óendanlegra mengja að n < m, ef n < m. Samfellutilgátan segir að ekki sé til fjöldatala x, þ.a. 0 < x < 1.

Ekki er til nokkurt mengi sem inniheldur allar hugsanlegar fjöldatölur, því veldismengi slíks mengis hefði hærri fjöldatölu en mengið sjálft. Með því að bæta fjöldatölu veldismengisins í mengi allra fjöldatalna, væri komið nýtt mengi með hærri fjöldatölu en uppaflega mengið og síðan koll af kolli.

Fjöldatala er stundum kölluð höfuðtala mengis.